[ Valmynd ]

Færslur októbermánaðar 2010

ég sætti lagi

28. október 2010

þegar ég gekk undir ljósastaur sem krummi sat uppi á og gaf frá sér sérkennileg högghljóð. Enda vildi ég síður fá skít í hausinn.

Ummæli (0) - Óflokkað

ég er að skrifa grein

24. október 2010

þar sem ég reyni að rökstyðja þá hugmynd mín að starfendarannsóknir séu möguleg aðferð fyrir starfandi kennra til að efla vald sitt yfir þekkingunni á fagi sínu. Rökstuðningurinn felst samt eiginlega fyrst og fremst í því að benda á það sem aðrir hafa sagt um viðfangsefnið. Þessir aðrir eru  fræðimenn sem ég trúi að hafi eitthvað […]

Ummæli (0) - Óflokkað

þarf maður

15. október 2010

endilega að áorka svo miklu. Er ekki nóg að vera og fara svo.

Ummæli (0) - Óflokkað

ég heyri á mörgum

9. október 2010

sem ég tala við að þeir telja fjölmiðla standa sig mjög illa, þá skorti dýpt og spóli bara í því sem þeir halda að sé vinsælt hverju sinni. Þannig líkist þeir tækifærissinuðum stjórnmálamönnum sem segja það sem þeir telja að fjöldinn vilji heyra.
Það sjónarhorn sem virðist unnið útfrá í fjölmiðlum er yfirleitt mjög þröngt. Fjölmiðlar […]

Ummæli (0) - Óflokkað

gleymdi að nefna

5. október 2010

að á litum  trjánna sé ég hvaða árstíð er hverju sinni.

Ummæli (0) - Óflokkað

hér heima

get ég fylgst með birtunni brjótast fram og fjölbreyttum litbrigðum himinsins. Ég sé sjóinn og get því greint hvort lyngt er eða hvasst. Ég sé á fjallstoppunum hvort komið er frost. Af umferðaniðnum veit ég hvort er virkur dagur eða helgur  og á fánum verslana sé ég hvort þær eru opnar eða lokaðar.

Ummæli (0) - Óflokkað