[ Valmynd ]

Færslur nóvembermánaðar 2010

eins og belja á svelli

29. nóvember 2010

nærri dottin nokkrum sinnum á svörtum ís.

Ummæli (0) - Óflokkað

meira hvað ég

22. nóvember 2010

lifi við mikinn lúxus. Hér skröltum við tvö í stórri íbúð og getum leikið okkur eins og okkur listir. Þó auðvitað sé hálf tómlegt þegar börnin eru öll farin annað þá er ekki laust við að það sé spennandi tóm að fylla nú eða njóta.

Ummæli (0) - Óflokkað

inn á milli koma

15. nóvember 2010

tættir dagar sem virðast hlaðnir viðfangsefnum en ef vel er að gáð varð ekki neitt úr neinu.

Ummæli (0) - Óflokkað

það þarf töluverða

8. nóvember 2010

pollýönnu til að sjá hið jákvæða við það að hafa fáa áheyrendur, sérstaklega þegar maður hefur lagt mikið á sig við undirbúning. En auðvitað blasir við að það er kostur að vitleysan sem vellur upp úr manni fari ekki víða.

Ummæli (0) - Óflokkað

gott að sjá

2. nóvember 2010

að fólk er farið að tjá  opinberlega efasemdir um aðferðir og tilgang þeirra sem eru hvað háværastir þessa dagana. Andrúmsloftið er viðkvæmt og við megum ekki láta lýðskrumara ná tökum á hugsunum okkar og tilfinningalífi. Við erum í djúpum skít og það er ekki fyrr en við viðurkennum það, öxlum ábyrgð og hættum að láta […]

Ummæli (0) - Óflokkað